Snjallvæðing bókana í höfnum
Umbreyting með hugbúnaði
Hjá Faxaflóahöfnum er ávallt leitast eftir tækifærum til að auka skilvirkni í rekstri hafna fyrir alla þá aðila sem eiga í hlut. Fyrir umboðsaðila og aðra sem tengjast komu skemmtiferðaskipa er afar mikilvægt að bókanir farþegaskipa séu skilvirkar og hjálpi þessum aðilum í sínum störfum.
DOKK bókunarhugbúnaðurinn var þróaður á Íslandi sem miðlægur hugbúnaður fyrir bókanir farþegaskipa og er í dag í notkun fyrir nær allar hafnir íslands og nýverið innleitt víða í Færeyjum.
Markmiðið með þróun á DOKK var að útrýma dreifðum samskiptum sem geta skapað vandræði í rekstri hafna.
DOKK leysti þetta af hólmi með miðlægum hugbúnaði sem gerir höfnum og umboðsmönnum kleift að viðhalda öllum bókunum sínum á einum stað ásamt samskiptum og breytingasögu bókana. DOKK umbreytir þannig rekstri hafna og umboðsmanna og gerir bókunarferlið skilvirkara og einfaldara. Einnig stuðlar DOKK að betri og jafnari dreifingu á skipakomum.
Innleiðing á dokk í Færeyjum
Dokk hefur vakið athygli víða eftir fyrstu útgáfu en tvö stærstu umboð Færeyja, Tor Shipping og Faroe Ship, hafa tekið upp hugbúnaðinn. Sömu áskoranir voru fyrir hendi í rekstri þeirra áður en dokk kom til sögu sem nú er í notkun hjá 5 höfnum í Færeyjum. Hingað til hafa borist ríflega 250 bókanir í Færeyjum í gegnum DOKK en vonir standa til að innleiðing í höfnum í Færeyjum haldi áfram á næstu misserum.
Ávinningur af dokk
Dokk gerir farþegaskipakomur aðgengilegri fyrir alla. Dagatal sem sýnir nákvæmlega hvar og hvenær skemmtiferðaskip koma til hafnar er lykilatriði fyrir fjölbreyttan iðnað í smærri sveitarfélögum sem reiða sig á komu farþegaskipa. Ferðaþjónustuaðilar víðsvegar að hafa nýtt sér dagatalið í miklum mæli og skipulagt sig í kringum fjölda farþega á hverju skipi fyrir sig. Margskonar ferðaþjónustufyrirtæki og önnur þjónustufyrirtæki nýta sér þannig dagatal dokk til að áætla komu farþega og skipuleggja rekstur sinn í samræmi við það.

