Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 260

Fundur nr. 260

Ár 2025, föstudaginn 26. september kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.

Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir – vék af fundi eftir 6. lið
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Auk ofangreindra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál
Hafnarstjóri kynnti að fallið hafi verið frá forkaupsrétti eftirfarandi fasteigna með venjulegum fyrirvara um að afnot lóða falli að gildandi deiliskipulagi og lóðarleigusamningum:
a) Fiskislóð 31 / F250-0249 og F250-0260
Eigandi: Plús rekstrar ehf, kt. 530421-1270
Kaupandi: Hálsakrókur 5 ehf, kt. 441122-1360
b) Uppskipting eigna: Skútuvogi 13a, F2020960
Eigandi: Dan-Inn ehf.
Nýr eigandi: Skútuvogur 13a ehf.
c) Eyjarslóð 9 / F200-0089 02-0101
Eigandi: Basalt ehf., kt. 671005-1710
Kaupendur: Ágúst Guðmundsson, kt. 071164-3229 og Þuríður Reynisdóttir, kt. 140370-3639.

4. Fjárhagsáætlun
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kom á fundinn undir þessum lið og kynnti drög að fjárhagsáætlun Faxaflóahafna fyrir árið 2026. Áætlunin verður tekin til afgreiðslu á næsta fundi stjórnar.

5. Gjaldskrá 2026
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kynnti drög að almennri gjaldskrá Faxaflóahafna og sértækri gjaldskrá fyrir skemmtiferðaskip fyrir árið 2026. Friðrik svaraði spurningum fundarmanna. Stjórn samþykkti gjaldskrárnar samhljóða.

6. Sundabraut, hagsmunamat
Enn sat Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs fyrir svörum eftir að hafa kynnt mat á fjárhagslegum áhrifum hugsanlegra skipulagsbreytinga vegna legu Sundabrautar yfir hafnarsvæðið við Vogabakka. Matið var unnið af KPMG fyrir Faxaflóahafnir og Vegagerðina.

7. Upplýsingatækni, gloppugreining NIS2
Því næst kynnti Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs niðurstöður gloppugreiningar vegna innleiðingar reglugerðar Evrópusambandsins um netöryggi og stafrænt rekstraröryggi (NIS2 reglugerðar) ásamt því að svara spurningum fundarmanna. Greininingin var unnin af Deloitte fyrir Faxaflóahafnir.

8. Áhættumat – til kynningar
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri Faxaflóahafna kom á fundinn undir þessum lið. Gyða kynnti niðurstöður áhættumats stjórnenda og svaraði spurningum fundarmanna.

9. Skemmtiferðaskip, breytingar á skattaumhverfi og bókunarstaða
Hafnarstjóri fór yfir kynningu á áhrifum breytinga á skattaumhverfi skemmtiferðaskipa, en hið opinbera stendur fyrir þríþættum breytingum á skattaumhverfi skemmtiferðaskipa samtímis. Hafnarstjóri svaraði spurningum fundarmanna og fram kom m.a. að vísbendingar eru um töluverðan samdrátt í komum skemmtiferðaskipa á næstu árum, sem mun sér í lagi hafa áhrif á minni hafnir, sem og að skatttekjur muni minnka.

10. Önnur mál
Engin önnur mál

Fundi slitið: kl. 12:05

Fundur nr. 260 - Faxaflóahafnir