Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 259

Fundur nr. 259

Ár 2025, föstudaginn 22. ágúst kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.

Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Már Másson – vék af fundi undir 5. lið
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Auk ofangreindra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál
Hafnarstjóri kynnti að fallið hafi verið frá forkaupsrétti eftirfarandi fasteigna með venjulegum fyrirvara um að afnot lóða falli að gildandi deiliskipulagi og lóðarleigusamningum:
a) Erindi Kornhlöðunnar ehf. um yfirfærslu fasteignanna að Korngörðum 6 og 10
Fastanr. F-2015896 og F-2015878,
skv. samrunaáætlun við Fóðurblönduna ehf.
b) Erindi Hafgæða sf. um sölu á Fiskislóð 47
Fastanr. F-2221407.
Kaupandi er Hvalbakur ehf.

4. Veðurviðmið
Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður kom á fundinn undir þessum lið og kynnti vinnu við setningu formlegra veðurviðmiða í höfnum Faxaflóahafna. Fyrir fundinum lág tillaga að slíkum viðmiðum og voru þau samþykkt samhljóða.

5. Fjárhagsuppgjör fyrstu sex mánuða ársins
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs, og Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri fjármála komu á fundinn undir þessum lið. Kynntu þau óendurskoðað fjárhagsuppgjör fyrstu sex mánaða 2025. Heildartekjur á tímabilinu námu 3.068 m.kr. eða 8,1% umfram áætlun; EBITDA tímabilsins er 936 m.kr. eða 26,6% umfram áætlun og rekstrarniðurstaða þess er jákvæð um 627 m.kr. eða 72,1% umfram áætlun. Svöruðu þau spurningum fundarmanna.

6. Olíubirgðastöðin í Örfirisey
Hafnarstjóri kynnti stöðu mála varðandi olíubirgðastöðina í Örfirisey og svaraði spurningum fundarmanna. Faxaflóahafnir hafa óskað eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um mögulega framlengingu heimildar í aðalskipulagi um 10 ár eða til ársins 2050.

7. Önnur mál
Umræður um starfsáætlun stjórnar og flr.

Fundi slitið: kl. 11:10