Fundur nr. 258
Ár 2025, miðvikudaginn 4. júní kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 13:00.
Mætt:
Líf Magneudóttir
Hildur Björnsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson – í fjarfundarbúnaði
Helga Harðardóttir
Már Másson
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Auk ofangreindra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri sem ritaði fundargerð.
1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.
2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.
3. Forkaupsréttarmál
Engin forkaupsréttarmál lágu fyrir fundinum.
4. Samningur um vetrarleigu farþegamiðstöðvar
Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstóri hafnarinnviða, kom á fundinn undir þessum lið og kynnti niðurstöður útboðs á vetrarleigu farþegamiðstöðvar við Skarfabakka. Þrjú tilboð bárust. Stjórn samþykkti heimild hafnarstjóra til að ganga til samninga til fimm ára með framlengingarheimild til tveggja ára, við þann aðila sem átti hagstæðasta tilboðið. Jafnframt samþykkti stjórn að fela stjórnarformanni og hafnarstjóra að skipuleggja og standa fyrir samkeppni um nafn á farþegamiðstöðina og bera tillögu sína undir stjórn til samþykktar.
5. Arðgreiðslugeta
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kom á fundinn undir þessum lið og kynnti útreikninga á áhrifum mismunandi upphæð arðgreiðslu á fjárhagsstöð fyrirtækisins og svaraði spurningum fundarmanna.
6. Önnur mál
Engin önnur mál.
Fundi slitið: kl. 14:15