Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 257

Ár 2025, föstudaginn 23. maí kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman á fundi í Hafnarhúsinu. Fundurinn hófst kl. 9:30.

Mætt:
Líf Magneudóttir
Friðjón Friðjónsson
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Már Másson
Páll Brynjarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Auk þeirra voru á fundinum Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs og Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

3. Forkaupsréttarmál
Hafnarstjóri kynnti að fallið hafi verið frá forkaupsrétti eftirfarandi fasteigna með venjulegum fyrirvara um að afnot lóða falli að gildandi deiliskipulagi og lóðarleigusamningum:
a. Erindi Kornhlöðunnar ehf. um sölu á Korngörðum 6, Reykjavík.
Fastanr. 2015896
Kaupandi: Fóðurblandan ehf.
b. Erindi Kornhlöðunnar ehf. um sölu á Korngörðum 10, Reykjavík.
Fastanr. 2015878
Kaupandi: Fóðurblandan ehf.

4. Fjörusteinninn, umhverfisviðurkenning Faxaflóahafna
Ólafur Melsted, skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna og Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri komu á fundinn og fóru yfir tilnefningar til veitingar umhverfisviðurkenningar Faxaflóahafna 2025, Fjörusteinsins. Stjórn samþykkti tillögu stjórnenda og verður hún kynnt á aðalfundi félagsins í júnímánuði.

5. Kostnaðarrétt gjaldskrá
Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs kynnti greiningu sem KPMG vann fyrir Faxaflóahafnir um arðsemi rekstrar félagsins á liðnum árum og möguleg áhrif hennar á gjaldskrá, og svaraði spurningum fundarmanna. Greiningin verður nýtt í vinnu við gjaldskrá sem fer fram í haust.

6. Grænt bókhald og losunarbókhald
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri kom á fundinn undir þessum lið; fór yfir grænt bókhald Faxaflóahafna fyrir 2024 og losunarbókhald skipaumferðar í höfnum félagsins 2024 og svaraði spurningum fundarmanna.

7. Önnur mál
a. Erindi frá Borgarbyggð um fjármagnsskipan Faxaflóahafna tekið fyrir og rætt.
b. Erindi frá Sameyki í bréfi dags. 25. apríl sl. er vísað til hafnarstjóra til afgreiðslu.
c. Ragnheiður H. Magnúsdóttir óskaði eftir því að netöryggismál Faxaflóahafna fái umfjöllun á næstu fundum stjórnar.

Fundi slitið: kl.11:25