Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 254

Ár 2025, þriðjudaginn 25. mars kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman í fundarherbergi
hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl. 09:30.

Mætt:
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður
Hildur Björnsdóttir – í fjarfundarbúnaði
Már Másson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Helga Harðardóttir
Páll Brynjarsson
Auk þeirra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og
Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri sem ritaði fundargerð.

1. Öryggi, heilsa og umhverfi
Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.
2. Mánaðaryfirlit hafnarstjóra
Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.
3. Forkaupsréttarmál
Hafnarstjóri kynnti að fallið hafi verið frá forkaupsrétti eftirfarandi fasteigna með
venjulegum fyrirvara um að afnot lóða falli að gildandi deiliskipulagi og
lóðarleigusamningum:
a) Erindi Sólvalla fasteignafélags slf., kt.591020-1020, um sölu á Fiskislóð 45F,
Reykjavík, fastanr. 229-6867. Kaupandi er Luxus Vesen ehf. kt. 421023-0500.
b) Erindi Laka Fasteigna (áður GT 2 ehf.), kt. 541008-1440, um sölu á Eyjarslóð
1, Reykjavík, fastanr. 221-8147 með merkingu 02-0101 og fastanr. 200-0099
með merkingu 01-0101. Kaupendur eru Ágúst Guðmundsson, kt. 071164-
3229 og Þuríður Reynisdóttir, kt. 140370-3639.
c) Erindi Laka Fasteigna (áður GT 2 ehf.), kt. 541008-1440, um sölu á Eyjarslóð
1, Reykjavík, fastanr. 224-4087 og merking 01-201. Kaupandi er Pekron ehf.,
kt. 480823-0600.
d) Erindi Kletta fjárfestinga ehf. (áður Fossar ehf.), kt. 511193-2149, að Eyjarslóð
9, Reykjavík, fastanr. 224-7089 með merkingu 02-0103. Kaupendur eru Ágúst
Guðmundsson, kt. 071164-3229 og Þuríður Reynisdóttir, kt. 140370-3639.
e) Erindi Kenneth Walter Kaldalóns Balys, kt. 200468-2019, að Eyjarslóð 9,
Reykjavík, fastanr. 224-7091. Kaupandi er Dada Property ehf., kt. 680225-
0870.

2
4. Samningsumboð
Fyrir fundinum lá tillaga frá hafnarstjóra um að veita Samtökum atvinnulífsins umboð
til samningaviðræðna við fulltrúa BMH og/eða annarra stéttarfélaga um gerð
kjarasamnings vegna starfsmanna sem ekki tilheyra stéttarfélögum með samninga
við félagið. Var hún samþykkt samhljóða.
5. Sameining lóðanna að Fiskislóð 33, 35 og 37
Ólafur Melsted, skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna kom á fundinn undir þessum lið og
kynnti tillögur að sameiningu lóðanna við Fiskislóð nr. 33, 35 og 37. Stjórn fyrir sitt
leyti sammála tillögu um sameiningu umræddra lóða.
6. Starfskjarastefna
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri Faxaflóahafna kom á fundinn undir
þessum lið og kynnti breytingar á starfskjarastefnu félagsins, en þær ná eingöngu til
gildistíma stefnunnar. Var stefnan samþykkt samhljóða.
7. Jafnréttis- og launastefna
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri Faxaflóahafna kynnti tillögur um
breytingar á jafnréttis- og launastefnu félagsins, en með þeim yrðu þessar tvær
stefnur sameinaðar í eina. Ráðgert er að nýja stefnan verði til afgreiðslu á næsta
fundi stjórnar.
8. Áhættumat rekstrar
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri Faxaflóahafna kynnti áhættumat
rekstrar og svaraði spurningum fundarmanna.
9. Landtengingar
J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða kom á fundinn undir þessum lið;
kynnti áætlun um uppbyggingu landtenginga við Skarfabakka og svaraði spurningum
fundarmanna.
10. Óveðrið í byrjun marsmánaðar
Helgi Laxdal, sviðsstjóri innviða kom á fundinn undir þessum lið og kynnti ásamt Ingu
Rut Hjaltadóttur, sviðsstjóra framkvæmdasviðs orsök og afleiðingar skakkafalla sem
urðu í Akraneshöfn og á Fiskislóð í Reykjavík vegna óveðursins í byrjun
marsmánaðar og svöruðu spurningum fundarmanna.
11.Önnur mál
Engin önnur mál

Fundi slitið 11:45

Fundur nr. 254 - Faxaflóahafnir