Faxaflóahafnir

Fundargerðir

Fundur nr. 252

Fundur nr. 251

Ár 2025, föstudaginn 28. febrúar kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman í fundarherbergi hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl. 09:30

Mætt:

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður

Hildur Björnsdóttir

Már Másson – í fjarfundarbúnaði

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Guðmundur Ingþór Guðjónsson

Helga Harðardóttir
 

Auk þeirra voru á fundinum Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs og Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri sem ritaði fundargerð.

 

Öryggi, heilsa og umhverfi

Mánaðarskýrsla öryggisstjóra lögð fram til kynningar og rædd.

Mánaðaryfirlit hafnarstjóra

Lagt fram og kynnt af hafnarstjóra og rætt.

Forkaupsréttarmál
Hafnarstjóri kynnti að fallið hafi verið frá forkaupsrétti eftirfarandi fasteigna með venjulegum fyrirvara um að afnot lóða falli að gildandi deiliskipulagi og lóðarleigusamningum:

  1. Erindi Fasteignafélagsins Kletta fjárfestinga., um sölu að Eyjarslóð 9, Reykjavík. Fasta nr. 224-7089, merking 02-0103 . Kaupandi Ágúst Guðmundsson og Þuríður Reynisdóttir.

  2. Erindi Laka Fasteigna ehf., um sölu að Eyjarslóð 1, Reykjavík. Fasta nr. 221-8147, merking 02-0101 og 200-0099. Kaupandi Ágúst Guðmundsson og Þuríður Reynisdóttir.

  3. Erindi GT 2 ehf., um sölu að Eyjarslóð 1, Reykjavík. Fasta nr. 225-4087, merking 01-0201 og 227-1358 . Kaupandi Pekron ehf.

Fjárhagsuppgjör ársins 2024

Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðstjóri viðskiptasviðs, og Ragnheiður Ragnarsdóttir, deildarstjóri fjármála komu á fundinn undir þessum lið. Kynntu þau óendurskoðað fjárhagsuppgjör ársins 2024. Heildartekjur ársins numu 6.463 m.kr. og er þær 12,1% umfram áætlun. EBITDA ársins nam 2.222 m.kr. sem er 19,9% umfram áætlun og rekstrarniðurstaða jákvæð um 1.652 m.kr. eða 49,5% umfram áætlun. Svöruðu þau spurningum fundarmanna.

Þróunarfélag Grundartanga

Fyrir fundinum lá ósk frá Þróunarfélagi Grundartanga (ÞG) um 15 m.kr. rekstrarstyrk fyrir árið 2025 og minnisblað frá formanni hafnarstjórnar og hafnarstjóra, sem bæði sitja í stjórn ÞG. Stjórn samþykkti samhljóða að veita styrkinn í tveimur jöfnum greiðslum.

Samkeppniseftirlitið

Páll Gunnar Pálsson og Brynja Jónbjarnardóttir frá Samkeppniseftirlitinu komu á fundinn undir þessum lið ásamt Magnúsi Baldurssyni lögmanni Faxaflóahafna. Fóru Páll Gunnar og Brynja yfir álit eftirlitsins nr. 1/2023 um samkeppnishindranir á flutningamarkaði og svöruðu spurningum fundarmanna.

Önnur mál

Engin önnur mál

Fundi slitið 11:45

Fundur nr. 252 - Faxaflóahafnir