Faxaflóahafnir

Fundargerðir

27. fundur

Ár 2006, fimmtudaginn 31. ágúst kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar og hófst fundurinn kl. 14:00.
Mættir:

  • Björn Ingi Hrafnsson

  • Kjartan Magnússon,

  • Ólafur R. Jónsson,

  • Árni Þór Sigurðsson,

  • Sæmundur Víglundsson,

  • Hallfreður Vilhjálmsson,

  • Páll Brynjarsson

  • Dagur B. Eggertsson.

.Áheyrnarfulltrúar: Sveinn Kristinsson, Jón Sigurðsson og Sigurður Jónasson.
Auk þess sátur fundinn: Varafulltrúar í stjórn þeir: Bjarni Karl Guðbergsson, Stefán Jóhann Stefánsson, Sveinbjörn Eyjólfsson, Margrét Sverrisdóttir og Stefán Ármannsson. Einnig eftirtaldir starfsmenn Faxaflóahafna sf.: Gísli Gíslason hafnarstjóri, sem jafnframt ritar fundargerð, Vignir Albertsson skipulagsfulltrúi, Helgi Laxdal, forstöðumaður rekstrardeildar, Gunnbjörn Marinósson, forstöðumaður tölvu- og upplýsingadeildar, Þorvaldur Guðmundsson, yfirhafnsögumaður og Hallur Árnason, deildarstjóri.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna á þennan fyrsta fund nýkjörinnar stjórnar. 

1. Bréf Reykjavíkurborgar dags. 18.8 og 25.8 varðandi starfshóp um framtíðarnotkun Örfiriseyjar.

  • Formaður gerði grein fyrir hlutverki starfshópsins. Samþykkt að fulltrúi hafnarinnar verði Björn Ingi Hrafnsson.

2. Hafnasambandsþing fimmtudaginn 12. og 13. október 2006 á Höfn í Hornafirði.

  • Hafnarstjóri gerði grein fyrir dagskrá fundarins og því að tilkynna þurfi þátttöku sem fyrst.

3. Deiliskipulag hafnasvæðisins í Borgarnesi.

  • Skipulagsfulltrúi gerði grein fyrir fyrirliggjandi hugmyndum. Málið verður tekið til afgreiðslu á næsta fundi stjórnarinnar.

4. Kynning á starfsemi Faxaflóhafna sf.

  • Eftirfarandi fluttu erindi um skipulag, starfsemi og verkefni Faxaflóahafna sf.:

  • a. Gísli Gíslason. Almenn atriði í starfsemi hafnarinnar, skemmtiferðaskip, starfsmannamál, fjármál og framkvæmdir.

  • b. Vignir Albertsson. Deiliskipulagsverkefni í vinnslu, lóðamál og verkefni sem vinna þarf að á næstu mánuðum.

  • c. Hallur Árnason. Hafnavernd – grænt bókhald o.fl.

  • d. Gunnbjörn Marinósson. Upplýsingakerfi hafnarinnar, heimasíða o.fl.

  • e. Helgi Laxdal. Rekstrarverkefni, starfsemi bækistöðvar og umsýsla með fasteignum .

  • f. Þorvaldur Guðmundsson. Hafnaþjónustan – skipulag og starfsemi.

  • Rætt var um ýmis atriði varðandi starfsemi hafnarinnar. Að lokinni kynningunni var farið í siglingu þar sem hafnarmannvirki í Reykjavík, á Grundartanga og á Akranesi voru skoðuð.

Fleira ekki gert,

27. fundur - Faxaflóahafnir