Faxaflóahafnir
Fjármáladeild Faxaflóahafna leitar að bókahldsfulltrúa

Fjármáladeild Faxaflóahafna leitar að bókahldsfulltrúa

Við leitum að bókhaldsfulltrúa til að ganga til liðs við teymi fjármáladeildar Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu, Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
* Skráning og bókun innkaupareikninga í fjárhagskerfi
* Sölureikningagerð
* Eftirfylgni með innheimtu
* Samskipti við viðskiptavini og lánadrottna
* Almenn aðstoð við verkefni fjármáladeildar
* Önnur tilfallandi verkefni á viðskiptasviði

Menntunar- og hæfniskröfur
* Haldgóð reynsla og þekking á bókhaldi og afstemmingum
* Reynsla af bókhaldskerfum. Reynsla og/eða þekking á Dynamics 365
* Business Central kostur
* Góð kunnátta á Excel
* Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða viðurkenndur bókari
* Sjálfstæði og góð samskiptahæfni
* Hæfni til að vinna í hópum

Faxaflóahafnir reka stærstu hafnir landsins og starfa rúmlega 80 manns á starfsvæðum okkar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi.

Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir.

Sá einstaklingar sem við leitum að í starfið þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, vera sjálfstæður í starfi og hafa haldgóða reynslu til viðkomandi verkefna.

Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu í Hafnarhúsinu - skrifstofu Faxaflóahafna, Tryggvagötu 17 í Reykjavík.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Friðrik Þór Hjálmarsson sviðsstjóri Viðskiptasviðs.
fridrik@faxafloahafnir.is


Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsemi sinni. Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 27. september n.k.

Umsóknir berast í gegnum Alfred.is