Faxaflóahafnir
Hafsjór af skemmtun á Sjómannadeginum 2026

Hafsjór af skemmtun á Sjómannadeginum 2026

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Reykjavík sunnudaginn 7. júní með glæsilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðarhöldin fara af stað með líflegri og litríkri skrúðgöngu kl. 12:30 frá Hörpu að hátíðarsvæðinu á Grandagarði og nágrenni.

Fjölbreytt skemmtun í boði fyrir alla fjölskylduna þar sem meðal annars koma fram; Sigga Ósk, Júlí og Dísa, Bjössi brunabangsi og Latibær. Hægt verður að fylgjast með björgunarsýningu úr sjó, boðið verður upp á andlitsmálun, þrautir og leiki fyrir börn á öllum aldri og ókeypis verður á sýningu Sjóminjasafnsins í og í Varðskipið Þór.

Frá höfnum okkar í Reykjavík, Borgarnesi, á Akranesi og Grundartanga sendum við hjá Faxaflóahöfnum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hlýjar kveðjur á Sjómannadaginn, með þökk fyrir ómetanlegt starf í þágu samfélagsins.

Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn 🐟⚓🌊

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á vefsíðu Sjómannadagsins 2026.

Það eru Sjómannadagsráð, Faxaflóahafnir og Brim sem standa að hátíðinni eins og undanfarin ár.

Hafsjór af skemmtun á Sjómannadeginum 2026 - Faxaflóahafnir